+

Change test title

Change test text first Change test text second
Yes login

No cancel
+

Change test title

Change test text first Change test text second
Yes login

No cancel
+

Change test title

Change test text first Change test text second
Yes login

No cancel
+

Change test title

Change test text first Change test text second
Yes login

No cancel
+

Eyða þessu prófi

Þú ert að fara að eyða öllum niðurstöðum og gögnum prófsins, sem þú ert skráð(ur) inn með, fyrir fullt og allt. Til að staðfesta, skaltu slá inn sama ID-prófauðkenni aftur.

Rangt ID-prófauðkenni

Vinsamlegast sláðu inn sama ID-prófauðkenni og þú notaðir til að skrá þig inn.
+

Ertu viss um að þú viljir eyða þessu prófi?

Þegar niðurstöðum prófsins hefur verið eytt, er ekki hægt að endurheimta þær.
Prófauðkenni:12455TT
Eyða varanlega
No cancel
+
+

Upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga

Hjá Zinzino leggjum við áherslu á að vernda og passa upp á þínar upplýsingar. Við fáum netfangið þitt og/eða símanúmer til að láta þig vita þegar niðurstaða prófsins er tiltæk, byggt á lögmætum hagsmunum okkar til að tryggja einfalt og markvisst prófferli (GDPR, Article 6.1(f)). Eftir það er persónuupplýsingum eytt.

Öll önnur gögn sem við meðhöndlum meðan á prófunarferlinu stendur eru geymd nafnlaus, þar á meðal niðurstaða prófsins. Þú hefur rétt til að óska eftir aðgangi að persónuupplýsingum þínum og óska eftir eyðingu þeirra hvenær sem er. Þú getur einnig afþakkað að fá tilkynningar.

Þú getur haft samband við okkur hér ef þú hefur einhverjar spurningar: customer.global@zinzino.com
Loading...
+
Logo
+
Logo
+
Logo

Okkur þykir þetta afar leitt!

Vegna tæknilegra vandamála þurfum við því miður að biðja þig um nýja prufu. Vinsamlegast hafðu samband við þjónustufulltrúa til að fá frekari leiðbeiningar.
ÞETTA EYÐUBLAÐ

Eyðublaðið þitt hefur þegar verið sent.

Við höfum móttekið beiðni þína um að fá nýtt prófsett.

Ef þú hefur frekari spurningar skaltu vinsamlegast hafa samband við þjónustuverið
Customer support
Loka

Prufan þín innihélt of lítið blóð

Of lítið blóð var í sýninu þínu og við gátum ekki greint prófið þitt. Því miður þurfum við nýja prufu frá þér. Vinsamlegast fylltu út eyðublaðið okkar til að fá nýtt prófsett.
ÞETTA EYÐUBLAÐ

Prufuna þína vantaði í umslagið

Svo virðist sem þú hafir gleymt að láta prufuna þína í umslagið. Því miður munum við þurfa nýja prufu frá þér. Vinsamlegast fylltu út eyðublaðið til að fá nýtt próf.
ÞETTA EYÐUBLAÐ
Takk fyrir. Við höfum nú móttekið beiðnina þína.

Fylltu út eftirfarandi upplýsingar og við munum útvega þér nýtt próf.

Senda
+
Logo
+
Logo
+
Logo
+
Logo
+
Logo
+
Logo
Loading...
+
Logo
×

Samkvæmt EFSA:


1.    DHA stuðlar að því að viðhalda eðlilegri heilastarfsemi
2.    EPA og DHA stuðla að eðlilegri hjartastarfsemi

 

Samkvæmt EFSA hefur D-vítamín eftirfarandi áhrif: 

 

3.    stuðlar að eðlilegu frásogi/nýtingu kalsíums og fosfórs
4.    stuðlar að eðlilegu kalsíummagni í blóði
5.    stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina
6.    stuðlar að viðhaldi eðlilegrar vöðvastarfsemi
7.    stuðlar að viðhaldi eðlilegrar tannheilsu
8.    stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins
9.    gegnir hlutverki í frumuskiptingarferlinu
 

 

 

Skráðu prófunarauðkennið þitt
Ok
id:
Land:
Kyn:
Aldur:
BalanceOil:
Aðrar Omega-3:
BalanceOil AquaX:
BalanceOil Vegan:
Essent:
Top Image

Líkamleg hreyfing

Hreyfðu þig meira

Fólk miklar þetta verkefni oft fyrir sér, venjulega vegna þess að því færist of mikið í fang. Það tekur tíma að breyta hegðun okkar og því ættum við að gefa okkur góðan tíma í það frá byrjun. Lykillinn er að einblína á framfarir en ekki fullkomnun. Settu rétta markmiðið strax í upphafi: í dag ætla ég gera aðeins meira en í gær og temdu þér þetta – að hreyfa þig aðeins á hverjum degi og þannig ná aðeins betri árangri. Lykillinn að vel heppnaðri hegðunarbreytingu er að fagna því nýja og gleyma því gamla. 

Þú skalt lifa NEAT lífi: 

Að auka ómarkvissar hreyfingar (Non-Exercise Activity Thermogenesis eða NEAT) hefur mikil áhrif. Að hreyfa fingur, hné og fætur á ómeðvitaðan hátt er gott fyrir heilsuna. Að standa oftar upp, ganga um, þrífa, búa um rúmið á morgnana hefur líka mælanleg góð áhrif. Ómarkvissar hreyfingar af þessu tagi, ásamt annars konar hreyfingu sem krefst lítillar áreynslu og varir í stuttan tíma, hafa jákvæð heilsufarsleg áhrif. 

 

Hvernig þú getur lifað NEAT lífi: 

Leitaðu að tækifærum yfir daginn. Gakktu um á meðan þú burstar tennurnar, talar (í símann eða augliti til auglitis) og ferðast til og frá vinnu. Notaðu hjólið í staðinn fyrir bílinn þegar þú verslar í matinn, sækir krakkana eða heimsækir vini í grenndinni. 

 

· Tröppur: Notaðu tröppurnar ef það er hægt. Það getur verið fljótlegra en að taka lyftuna en krefst áreynslu í stað þess að standa kyrr. 

 

· Gakktu reglulega: Stilltu vekjaraklukku til að minna þig á að standa upp og ganga um á 20-30 mínútna fresti. Gakktu á staðnum þegar þú horfir á sjónvarpið eða stattu upp og gerðu auðveldar æfingar á vinnutíma og leggðu til að fundir verði haldnir þar sem þú getur hreyft þig (t.d. gengið). 

 

· Breyttu stólnum þínum: Sama hversu mikið við hreyfum okkur eyðum við samt dágóðum hluta dagsins í að sitja. Notaðu hluta þess tíma í að sitja á líkamsbolta (body ball). Sú aukna áreynsla sem þarf til að halda jafnvægi á slíkum bolta í góðri líkamsstöðu reynir á kjarnavöðvana og krefst meiri orku. 

 

· Gerðu húsverkin: Taktu því fagnandi að ryksuga og þrífa glugga. Það krefst svipaðrar orku og rólegur göngutúr. Önnur verkefni eins og að búa um rúmið á hverjum degi, vaska upp og rykhreinsa daglega gera öll sitt gagn. 

 

Með því að leggja meiri áherslu á NEAT lífsstíl dregur þú úr kyrrsetu og eykur daglega hreyfingu. Það er líka frábær kostur fyrir fólk sem býr við hreyfitakmarkandi aðstæður eða sem gæti átt í erfiðleikum með áreynslumeiri hreyfingu. 

 

Það er mikilvægt að hafa í huga að flest NEAT hreyfing er of áreynslulítil til að koma þér í betra form og því ætti að nota hana til að bæta við (ekki leysa af hólmi) daglegt markmið þitt um að minnsta kosti 20-30 mínútur af hóflegri/kröftugri hreyfingu á dag. 

 

 

Að ganga til betri heilsu: 

Að ná 10.000 skrefum á dag jafngildir nokkurn veginn því að ganga 8 kílómetra og þú eyðir u.þ.b. 300 – 500 kílókaloríum. Ganga vekur kerfi líkamans, eykur blóðrásina, veldur því að við öndum dýpra og þýðir að við tökum þátt, líkamlega, í heiminum í kringum okkur. Það eitt og sér hefur mikilvæg og góð áhrif á andlega heilsu eins og rannsóknir hafa staðfest. 

 

Dæmi: 

Vika eitt; Reyndu að ná 5.000 skrefum á dag. Það verður auðvelt, svo auðvelt að þú munt líklega ekki einu sinni líta á það sem alvöru áskorun. Það er gott og frábær leið til að byrja. Árangur hvetur okkur áfram til að vilja ná lengra.  

 

Dagur tvö, nú er kominn tími til að beita 10% reglunni. Í dag muntu ganga 5.500 skref. Ekki mikið meira en í gær, en þó framför. Það er líka auðvelt, þú ert enn að ná árangri og síðast en ekki síst ertu enn að vinna. 

 

Með því að auka skrefafjöldann um 10% á hverjum degi muntu ná 10.000 skrefum á átta dögum! 

 

Með því að breyta gönguhegðun þinni á þennan hátt skiptir þú verkefninu niður í smærri markmið sem auðveldara er að ná. Hluti vandans sem við stöndum frammi fyrir þegar við gerum miklar breytingar er að kljást við truflun á rútínunni okkar. Með því að nota þessa varfærnu nálgun eykur þú líkurnar á að ná árangri og eykur sömuleiðis líkurnar á að þróa nýja venju sem hefur góð áhrif á heilsuna ævilangt. 

 

Góð ráð varðandi daglega hreyfingu 

Það er ekkert til sem heitir vont veður, bara óviðeigandi fatnaður. Vertu tækifærissinni þegar kemur að hreyfingu með því að nota eftirfarandi aðferðir. 

 

Farðu út áður en þú kemur á leiðarenda: 

Hugsaðu um daglegu ferð þína til og frá vinnu, einfaldlega með því að fara snemma út úr lestinni/sporvagninum/strætisvagninum geturðu bætt dýrmætum skrefum og hreyfingu við daginn þinn. Eða notaðu hjólið þitt, ef umhverfið og veðrið gera það mögulegt, í stað vélknúinna ökutækja. 

 

Leggðu bílnum: 

Í stað þess að reyna að finna stæði fyrir bílinn sem er nálægt vinnunni skaltu finna stað sem er að minnsta kosti kílómetra í burtu. Þessi einfalda aðferð skapar tækifæri til hreyfingar og þýðir að þú kemst ekki hjá því að ganga aukaskref á hverjum degi. Að leggja lengra í burtu er gott fyrir göngurútínuna þína. 

 

Fylgdu reglunni um ‘enga lyftu eða rúllustiga’: 

Markmiðið er einfalt – klifraðu í átt að betri heilsu! Sjáðu hverjar tröppur sem tækifæri til að hreyfa þig meira. Ekki svindla og hafðu þá reglu að nota aldrei lyftur eða rúllustiga! 

 

Tillögur um aðgerðir: 

Stilltu hreyfinga-vekjaraklukku á vinnutíma 

 

Auktu daglegan skrefafjölda / reyndu að ná að minnsta kosti 10.000 skrefum á dag 

 

Farðu í stuttan göngutúr eftir máltíðir (notaðu t.d. 10 mínútur af hádegishléinu til að hreyfa þig eftir að þú hefur borðað, farðu í stuttan 10 mínútna göngutúr í hverfinu eftir kvöldmat, gakktu í 10 mínútur fyrir morgunmat) 

 

Leiktu við krakkana / taktu þátt í áhugamálum þeirra (t.d. fótbolta / hjólreiðum / dansi)