Bættu stöðuna þína þannig að hún verði ákjósanleg
Leiðbeiningar
Leiðbeiningar og staða D-vítamíns

Leiðbeiningar Zinzino um D-vítamín
Eftir mikla vinnu, yfirferð nýjustu vísindagreina og athugun leiðandi heimilda í heiminum á sviði D-vítamíns þróuðum við loksins leiðbeiningar Zinzino fyrir fólk um allan heim. Þær eru veittar þér til glöggvunar og hægðarauka en þeim er ekki ætlað að koma í stað neinna staðbundinna reglna.
| Leiðbeiningar Zinzino | ng/mL | nmól/L |
| Hættulega lágt | < 8 | < 20 |
| Skortur/Ófullnægjandi | 9-19 | 21-49 |
| Nægilegt/Ákjósanlegt | 20-49 | 50-124 |
| Hækkað | 50-59 | 125-149 |
| Hátt | 60-79 | 150-199 |
| Mjög hátt | 80-160 | 200-399 |
Dæmi um alþjóðlegar leiðbeiningar
Samkvæmt National Institutes of Health (í Bandaríkjunum) eru tengslin milli 25(OH)D gildis og heilsu sem hér segir:
| Almennar leiðbeiningar | ng/mL | nmól/L |
| Skortur | < 12 | < 30 |
| Ófullnægjandi | 12 til <20 | 30 til <50 |
| Fullnægjandi | ≥ 20 | ≥ 50 |
| Hugsanlegar aukaverkanir | > 50 | > 125 |
Að sama skapi er D-vítamínskortur í Bretlandi skilgreindur sem gildi undir 25 nmól/L og er tengdur við beinkröm og beinmeyru.
Gildi á bilinu 25-30 nmól/L eru talin gefa til kynna ófullnægjandi stöðu. Í meirihluta rannsókna er niðurstaðan sú að 25(OH)D gildi ætti að vera hærra en 50 nmól/L, en í sumum er mælt með enn hærra gildi (t.d. yfir 75 eða jafnvel 250 nmól/L).
Það er almenn niðurstaða nýjustu ritrýndu vísindagreina að ákjósanleg staða D-vítamíns geti verið breytileg milli einstaklinga og þótt þær styðji það sjónarmið að hætta sé á hugsanlegum aukaverkunum ef gildið er hærra en 150 nmól/L þá er algengara að fólk upplifi slíkar aukaverkanir þegar það er hærra en 400 nmól/L.
Hjá Zinzino höfum við skoðað styrk og gæði gagna á þessu sviði og flokkunartaflan okkar er mun ítarlegri þar sem hún byggir beint á þessum niðurstöðum og ráðleggingum.
D-vítamínskortur
D-vítamín er að mestu tengt við sterk og heilbrigð bein þar sem það gerir frásogun kalsíums úr mat, mögulega. Skortur á D-vítamíni er jafnan tengdur við beinkröm, beinmeyru og beinþynningu.Margir hafa engin einkenni eða einkenni gætu verið ósértæk og breytast með tímanum.
Þar sem einkenni D-vítamínskorts eru oft lúmsk og ósértæk er mikilvægt að láta mæla stöðuna þína ef þig grunar að þú sért með skort.
Algeng einkenni D-vítamínskorts eru:
- Aukið næmi fyrir kvefi eða flensu
- Breytingar á skapi, svo sem þunglyndi eða kvíði
- Kraftleysi og þreyta
- Vöðvaslappleiki eða aumir og sársaukafullir vöðvar
- Beinverkir
- Sár lengi að gróa
- Beintap
- Hárlos
1.000.000.000 manns
D-vítamínskortur er vandamál á heimsvísu og er talið að einn milljarður manna eða 37% allra jarðarbúa, sé annað hvort með ófullnægjandi stöðu D-vítamíns eða skort á D-vítamíni.Eiturverkun
Dagleg notkun fæðubótarefna sem innihalda mikið magn D-vítamíns veldur eituráhrifum og gæti leitt til þess sem kallast D-vítamínofmagn eða D-vítamíneitrun.Þetta er sjaldgæft en mögulega alvarlegt ástand sem veldur því að líkaminn frásogar of mikið kalsíum úr mat. Uppbygging kalsíums í blóði (blóðkalsíumhækkun) getur valdið ógleði, uppköstum, slappleika og tíðum þvaglátum. Ógreind eiturverkun D-vítamíns gæti einnig leitt til beinverkja og nýrnavandamála (svo sem myndunar kalsíumsteina).
