Útreikningar okkar
Útreikningar okkar
- Fitusýrurnar 11 eru greindar og heildarmagn þeirra er metið 100%.
- Við byggjum gildin 6 að neðan á 7 fitusýrum.
- Greiningin á hverri af þessum 7 fitusýrum er reiknuð sem prósenta af 100%.

- Omega-3 eikósapentensýra (EPA)
- Omega-3 dókósahexensýra (DHA)
- Omega-3 dókósapentensýra (DPA)
- Omega-6 arakídonsýra (AA)
- Omega-6 díhómógammalínólensýra (DGLA)
- Mettuð fita, palmitínsýra (PA)
- Mettuð fita, sterínsýra (SA)
Niðurstöðugildin 6
Varnargildi
Fyrst eru eftirfarandi 3 viðurkenndu heilsuvísar reiknaðir:
- Gildið fyrir Omega-6 hlutfallið er reiknað með eftirfarandi hætti: (DGLA+AA) * 100 / (DGLA+AA+EPA+DPA+DHA)
- Gildið fyrir Omega-3 magn er summan af EPA+DHA
- Jafnvægisgildið er reiknað sem Omega-6 (AA) / Omega-3 (EPA)
Hvert vísandi gildi fær sama vægi í öðrum útreikningi og er úthlutað gildi á bilinu 0 til 100 sem síðan er deilt í með 3 til að fá varnargildið sem helst ætti að vera yfir 90. Ath.! EPA og DHA gildi hafa mikil áhrif á alla útreikninga og ef EPA og DHA prósenturnar eru lágar er ekki óalgengt að niðurstaðan fyrir varnargildi sé mjög lág eða jafnvel núll.
Omega-3 stuðull
Omega-3 stuðullinn er samantekt á prósentugildum fyrir tvær Omega-3 fitusýrur úr sjávarfangi, EPA og DHA. Samanlagt kjörgildi er að minnsta kosti 8% en hærri gildi eins og 10% eru ákjósanleg.
Omega-6:3 jafnvægi
Jafnvægið er reiknað með því að deila í prósentugildi AA með prósentugildi EPA (AA / EPA) sem er síðan gefið upp sem jafnvægisgildi, t.d. 3:1. Omega-6:3 jafnvægi líkamans ætti helst að vera undir 3:1.
Frumugegndræpi
Gegndræpi er reiknað með því að deila með prósentugildi Omega-3 fitusýranna í prósentugildi þessara tveggja tegunda af mettaðri fitu.’ Gegnumflæðisgildið er því skilgreint sem (PA+SA) / (EPA+DHA) og útkoman er sett fram sem gegnumflæðisstuðull, t.d. 3:1. Ef gegndræpisgildið er undir 4:1 sýnir það fram á nægilegt gegndræpi í frumuhimnum.
Hugrænn styrkur
Þetta er reiknað með því að deila í prósentugildi AA með samanlögðum gildum EPA og DHA, þ.e. gildi fyrir hugrænan styrk = AA / (EPA+DHA). Niðurstaðan er sett fram sem gildi fyrir hugrænan styrk, t.d. 1:1. Gildið þarf að vera 1:1 til að fullnægjandi og jafnt magn af bæði Omega-6 og Omega-3 fitusýrum sé flutt til heilans og taugakerfisins.
AA-stuðullinn sýnir mælt gildi Omega-6 fitusýrunnar arakídónsýru (AA) sem prósentuhlutfall af heildarmagni mældra fitusýra. Góð meðalgildi eru á bilinu 6,5 til 9,5% með kjörgildið 8,3%.
