Börn
Börn þurfa viðmiðunargildi sem miðast við þarfir þeirra – ekki fullorðinna

Ný vitneskja um Omega-3 stuðul barna
Ákjósanlegur Omega-3 stuðull hjá fullorðnum er ≥8%, en nýjar rannsóknir benda til að ≥6% sé ákjósanlegur stuðull hjá börnum.
Ákjósanlegur Omega-3 stuðull hjá fullorðnum er ≥8% og byggir það á vísum um heilsu hjartans en hjá börnum eru jákvæð áhrif Omega fitusýra mæld með tilliti til vitsmunaþroska. Það er vegna þess að vitsmunaþroski er mikilvægasti þroskaþátturinn sem ákvarðar framtíðarheilsu barnsins. Nýlegar rannsóknir á áhrifum Omega-3 í börnum leiddu í ljós að jákvæðustu áhrifunum á vitsmunaþroska er náð þegar börn eru með ≥6% Omega-3 stuðul (van der Wurff o.fl., 2020).
Omega-6 gildi í börnum
Omega-6 fitusýrur eru sérstaklega mikilvægar fyrir heilaþroska.
Góður heila- og taugaþroski barna krefst nægilegs magns af AA (arakídónsýru) fyrir vöxt, viðgerðir, viðhald og vernd taugafrumna. Vegna þessara mikilvægu áhrifa á heilaþroska eru börn náttúrulega með eilítið hærra hlutfall af Omega-6 en fullorðnir. Þetta má sjá í nýlegum alþjóðlegum rannsóknum og er staðfest með gögnum úr gagnagrunni Zinzino sem hefur að geyma upplýsingar um yfir 800.000 blóðprufur mismunandi aldurshópa (sjá mynd 1).
Heildar Omega 6
Samtals langar Omega-6 fitusýrur
Aa
Dgla
Mynd 1. Meðaltal n-6 AA, DGLA, %n-6 í HUFA, og heildar Omega-6 í börnum samanborið við fullorðna. Athugið! Sýni valið út frá því að vera með sama Omega-3 stuðul(>8), sem er þess vegna leiðréttur miðað við aldurstengdan mun á mataræði.
BalanceTest heilsumarkar og „lágmarksgildi“ barna
Það er munur á börnum og fullorðnum þegar kemur að ákjósanlegu gildi hvers heilsumarka í BalanceTest prófi Zinzino.
Vegna framangreinds efnaskiptavaxtar og þroskatengds munar á omega-3 og omega-6 stöðu hjá börnum hafa allir BalanceTest heilsumarkar, sérstök lágmarksgildi fyrir börn. Omega-6:3 hlutfallið er til dæmis náttúrulega hærra hjá börnum (5:1) en fullorðnum (3:1). Hér að neðan er að finna samanburð á lágmarksgildum barna og fullorðinna.
Verndargildi
Omega-3 gildi
Hugrænn styrkur
Frumugegndræpi
Arakídónsýrustuðull (AA)
9.6-12.5%
12.6-25%
10.1-12.5%
12.6-25%
