Bættu D-vítamínstöðuna þína
Hvers vegna við þurfum D-vítamín
Hvers vegna við þurfum D-vítamín

D3-vítamín er einnig í hávegum haft fyrir hlutverk sitt í að styðja við bæði vöðva og beinabyggingu með því að auka frásog kalsíums í smáþörmum. Þegar það dreifist um blóðrásina hjálpar D-vítamín við frásog kalsíums og fosfórs, sem aftur hjálpar til við að halda beinum sterkum, draga úr hættu á beinbrotum og bæta vöðvastyrk. Enn fremur, þegar við fáum nægt D3-vítamín í gegnum mataræðið aukum við möguleika okkar á að ná meiri hámarks beinmassa á fullorðinsárum, sem dregur úr líkum á beinþynningu.
Aftur á móti, ef líkaminn hefur ekki nægilegt D-vítamín til að frásoga kalsíum á áhrifaríkan hátt dregur hann kalsíum úr beinum í staðinn, sem aftur veldur því að beinin veikjast og ef ekki er gripið í taumana getur það hugsanlega leitt til beinbrota og beinþynningar.
Samkvæmt EFSA hefur D-vítamín eftirfarandi áhrif:
- stuðlar að eðlilegu frásogi/nýtingu kalsíums og fosfórs
- stuðlar að eðlilegu kalsíummagni í blóði
- stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina
- stuðlar að viðhaldi eðlilegrar vöðvastarfsemi
- stuðlar að viðhaldi eðlilegrar tannheilsu
- stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins
- gegnir hlutverki í frumuskiptingarferlinu
Áhættuþættir
- Kornabörn og ung börn og unglingar sem verja takmörkuðum tíma í að leika sér úti.
- Þungaðar konur og konur með barn á brjósti.
- Fólk sem er eldra en 65 ára (húðin er síður líkleg til að framleiða D-vítamín eftir því sem við eldumst).
- Fólk með dekkri húðlit (fólk af asískum, afrískum, afrísk-karabískum og mið-austurlenskum uppruna sem býr í norðlægu loftslagi).
- Fólk sem hylur stærstan hluta húðarinnar þegar það er úti.
- Fólk sem býr á norðlægari slóðum þar sem sólarljósið er ekki alltaf nógu sterkt til að framkalla D-vítamínmyndun í húðinni.
- Allir sem verja mjög litlum tíma utandyra síðla vors og á sumrin (fólk sem vinnur heima, í verslun eða á skrifstofu, fólk sem vinnur næturvaktir o.s.frv.).
- Fólk sem býr og starfar á svæðum þar sem loftmengun er mikil.
Aldur
Eldra fólk hefur gjarnan minni matarlyst, dregur úr neyslu fæðu sem er auðug af D3-vítamíni, á borð við feitfisk og eyðir meiri tíma innandyra en þeir sem yngri eru. Einnig minnkar myndun D-vítamíns í húðinni með aldri.
Húðgerð
Fólk með dökka húð þarf allt að 6 sinnum meira sólarljós en fólk með ljósa húð.
Sólarvörn
Við fáum um 80% af D-vítamíninu okkar í gegnum sólarljós. Notkun sólarvarnar dregur hins vegar úr því magni sólarljóss sem nær að húðinni og því minnkar framleiðsla D3-vítamíns í húðinni.
Ofþyngd og offita
Rannsóknir sýna að 25(OH)D gildið er um 20% lægri í fólki sem þjáist af offitu. Ein sennileg skýring á þessu er aukið magn fitu, en það má sennilega líka rekja til þess að fólk í ofþyngd er líklegra til að klæðast fötum sem hylja líkamann og takmarka þannig það svæði húðarinnar sem sólin nær að skína á.
Hreyfingarleysi
Í vöðvum okkar tengist D3-vítamínskortur minnkun á taugavöðvastarfsemi, styrk, ganghraða og jafnvægi. Með því að auka daglega hreyfingu og líkamsrækt utandyra getur þú spornað gegn þessum neikvæðu áhrifum og jafnframt skapað fleiri tækifæri til að örva eigin framleiðslu líkamans á D3-vítamíni.
Breiddargráða/árstíð
Almennt er mælt með fæðubót yfir vetrarmánuðina fyrir fólk sem býr á 40N og norðlægari breiddargráðum. Húðin getur ekki framleitt D-vítamín frá október og fram í mars þar sem sólarljósið er ekki nógu sterkt.
